Fáskrúðsfjörður

Austurland / Tjaldsvæði

Tjaldsvæðið er í friðsælu umhverfi við Ósinn, rétt innan við byggðina. Þar eru sturtur, snyrting, rafmagn og losun fyrir húsbíla.

Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er starfandi á sumrin í Gallerí Kolfreyju. Kaffi Sumarlína er notalegt veitingahús stutt frá tjaldsvæðinu og steinsnar þaðan er Anna frænka, lítið handverksgallerí. Handverksgalleríið Gallerí Kolfreyja er til húsa í sögu- og handverkshúsinu Tanga, fallega uppgerðu húsi sem stendur nálægt sjónum. Galleríið er rekið af handverkssamfélaginu á Fáskrúðsfirði. Söguleg tengsl við Frakkland eru mikil á Fáskrúðsfirði og bera götur bæjarins bæði íslensk og frönsk heiti. Lokið var við endurgerð frönsku húsanna sumarið 2014, en þekktast þeirra er líklega Franski spítalinn. Þar eru nú til húsa Fosshótel Austfirðir, veitingastaðurinn l‘Abri og Frakkar á Íslandsmiðum, einstakt safn sem fjallar um líf og störf franskra sjómanna hér við land. Franskir dagar eru fjölskylduhátíð með frönsku ívafi sem haldin er helgina fyrir verslunarmannahelgi ár hvert á Fáskrúðsfirði. Sundlaugin á Fáskrúðsfirði er notaleg innilaug með heitum útipotti. Fáskrúðsfjörður er einn af sjö bæjarkjörnum Fjarðabyggðar.

Þjónusta

Upplýsingar

Heimilisfang Óseyri
Póstfang/Bær 750 Fáskrúðsfirði
Sími 776 0062
Netfang camping.stodvarfjordur@gmail.com
Vefsíða www.visitfjardabyggd.is
Opnunartími 1 júní – 15 september
Fjarlægð frá Reykjavík: 178 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 665 km

Þjónusta á staðnum

Kort

Myndir