Tjaldsvæðið er á fallegum stað við Andapollinn, lítilli tjörn á vinstri hönd við innkeyrsluna í bæinn. Á svæðinu eru sturtur, salernisaðstaða, þvottavél og rafmagn, en
losun fyrir húsbíla er hjá þjónustumiðstöð Olís, skammt frá tjaldsvæðinu.
Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er opin á sumrin í Íslenska stríðsárasafninu við Heiðarveg. Skemmtilegar gönguleiðir í fallegu umhverfi liggja meðfram byggðinni ofanverðri og upp með Búðarárgili. Íslenska stríðsárasafnið er við upprunalega herbragga ofarlega í bænum. Safnið gerir hernámsárunum einstök skil, bæði hvað atburði tímabilsins snertir og tíðaranda. Í miðbæ Reyðarfjarðar er m.a. verslunarmiðstöðin Molinn og Sesam brauðhús, sem er ekta handverksbakarí og kaffihús. Vestan við Molann er Tærgesen, eitt elsta hús Reyðarfjarðar og er þar rekið samnefndur veitinga- og gististaður. Ysta bryggjan, austan við Molann, nefnist Barkurinn og mótar enn fyrir seglskipi, sem var sökkt á þessum stað sem bryggjuundirstaða. Síðustu helgina í júní er hernámsins minnst með Hernámsdeginum og er þá m.a. efnt til setuliðsskemmtunar í Íslenska stríðsárasafninu. Golfklúbbur Fjarðabyggðar rekur 9 holu golfvöll, skammt innan við þéttbýlið. Reyðarfjörður er landfræðileg miðja sveitarfélagsins Fjarðabyggðar og þaðan liggja leiðir til Eskifjarðar og Norðfjarðar í norðri og Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur í suðri.
Þjónusta
Upplýsingar
Heimilisfang Stekkjagrund 2
Póstfang/Bær 730 Reyðarfirði
Sími 776 0063
Netfang camping.reydarfjordur@gmail.com
Vefsíða www.visitfjardabyggd.is
Opnunartími 15 maí – 15 september
Fjarlægð frá Reykjavík: 667 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 57 km
Kort
Myndir



