Tjaldsvæðið á Drangsnesi er staðsett fyrir ofan þéttbýliskjarnann Drangsnes í Strandasýslu við norðanverðan Steingrímsfjörð. Góð hreinlætisaðstaða og sturtur eru við tjaldstæðið. Rafmagn er víða á svæðinu og ættu flestir að komast í rafmagn. Þvottavél og þurrkari eru á staðnum. Íþróttavöllur er við tjaldstæðið og nýlega er kominn ærslabelgur. Á Drangsnesi er sundlaug og heitur pottur við hana ásamt barnalaug, gufubaði og líkamsrækt. Sundlaugin er alla jafna vel nýtt af gestum. Ekki má gleyma heitum pottum sem eru í fjörunni 300 m fyrir neðan tjaldstæðið en þar eru einnig góð hreinlætisaðstaða og sturtur.
Tjaldsvæðið á Drangsnesi er fyrst og fremst fjölskyldusvæði því eru ferðalangar beðnir um að takmarka akstur um svæðið og sýna öðrum tillitsemi. Ölvun og háreysti veldur tafarlausri brottvísun. Ef stærri hópar en 4-5 einingar óska eftir að nýta sér aðstöðuna á Drangsnesi þarf að hafa sambandi við umsjónarmann og athuga fyrst með laust pláss og fá í framhaldi úthlutað plássi af honum.
Góðar gönguleiðir eru í nágrenni við Drangsnes, t.d merkt gönguleið á Bæjarfell sem er 345 m yfir sjó og þaðan er mjög víðsýnt yfir Húnaflóa og norður Strandir. Skemmtilegar fjörur eru skamt undan sem er ævintýri fyrir unga sem gamla. Verslun er á Drangsnesi ásamt veitingasölu og góðri gistiaðstöðu. Afþreyging er í boði t.d. ferðir út í Grímsey en þar er náttúruparadís. Mikið fuglalíf og er Lundinn þar í þúsunda tali. Boðið er uppá siglingu og sjóstöng.
ATHUGIÐ að Útilegukortið gildir ekki á Bryggjuhátíðinni á Drangsnesi 19-21 júlí.
Þjónusta
Upplýsingar
Heimilisfang Drangsnes
Póstfang/Bær 520 Drangsnes
Sími 8345520
Netfang drangur@drangsnes.is
Vefsíða drangsnes.is
Opnunartími 1. maí – 30 .september
Fjarlægð frá Reykjavík: 264 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 640 km
Kort
Myndir



