Tjaldsvæðið Skjól er staðsett mitt á milli Gullfoss og Geysis við veg nr. 35 í landi Kjóastaða. Tjaldstæði var opnað vorið 2014. Stutt er í helstu náttúruperlur landsins: 3,5 km niður að Geysi, 6 km upp að Gullfossi og um 4 km. að Brúarhlöðum. Kjörbúðir eru í um 25 km. nálægð.
Á Skjóli er veitingahús og bar sem opið er alla daga frá 15. maí til 15. september frá 10:00-23:00. Veitingahúsið býður upp á fljölbreytt úrval af pizzum, salat, fisk og súpur með brauði.
Í nágrenni Skjól er einnig hestaleigan í Myrkholti, eða í kílómeters fjarlægð. Ekki má gleyma hinum glæsilega Haukadalsvelli fyrir kylfingana, geysirgolf.is, sem er í tveggja kílómetra fjarlægð.
Hoppudýnan er alltaf á sínum stað og sparkvöllur. Örstutt er í Haukadalsskóg fyrir lengri eða styttri gönguferðir.
Á Skjóli er afþreyingarfyrirtækið Amazingtours með starfsstöð sína. Hægt er að kaupa ferðir með Amazingtours með því að bóka á www.Amazingtours.is, hringja í síma 517 4455 (á skrifstofutíma), einnig er hægt að kaupa ferðir á staðnum. Amazingtours býður upp á fjölbreytta afþreytingu: Snjósleðaferðir allt árið, snjósleðaferðir með innkomu í náttúrulega íshella á jökli, Buggyferðir um hálendi Íslands, ferðir á rafmagnsfjallahjólum undir leiðsögn og sérsniðnar einka ferðir eftir óskum
Verið hjartanlega velkomin á Skjól.
Þjónusta
Upplýsingar
Heimilisfang: Kjóastaðir
Póstfang/Bær: 801 Geysir
Sími 8994541
Netfang
Vefsíða skjolcamping.com
Opnunartími 1. maí -15. september
Fjarlægð frá Reykjavík: 110 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 647 km
Kort
Myndir


