Þórshöfn

Norðurland / Tjaldsvæði

Tjaldsvæðið okkar er ofarlega í þorpinu á kyrrlátum og notalegum stað. Þaðan er öll þjónusta í þorpinu í göngufæri. Aðstaða á tjaldsvæðinu er góð. Þar eru borð og bekkir, salernis- og sturtuaðstaða og gott rými fyrir hjólhýsi og húsbíla með aðgangi að rafmagni.

Í íþróttamiðstöðinni er góð aðstaða til heilsuræktar og afþreyingar. Þar má finna íþróttasal og líkamsrækt, 16,7×8 metra innisundlaug auk tveggja heitra potta og gufubaðs. Þar er einnig upplýsingamiðstöðin staðsett og ýmis önnur aðstaða fyrir ferðamenn, t.d. þvottavél og þurrkari. Við íþróttahúsið er sparkvöllur þar sem oftar en ekki er hægt að finna bæði með- og mótspilara.

Hjarta Þórshafnar slær í takt við sjávarföllin, þar hefur útgerð og fiskvinnsla verið aðalatvinnuvegurinn í gegnum tíðina. Því er einstaklega gaman að rölta niður að höfn og kíkja á mannlífið. Þá er gaman að ganga um lystigarðinn og heilsa upp á Valda vatnsbera. Þjónusta á Þórshöfn er mjög góð, þar er heilsugæsla og apótek, verslun, veitingastaður, grillskáli, íþróttahús og sundlaug, útibú frá Landsbankanum, pósthús, bensínstöð, bílaverkstæði ofl.  Við hafnargarðinn við Fjarðarveg eru komin fræðandi söguskilti um þorpið.

Áhugaverðir staðir í nágrenni Þórshafnar eru t.d. Langanes, Bakkafjörður og Rauðanes. Ef keyrt er út á Langanes er upplagt að heimsækja Sauðaneshúsið og fara út á glæsilegan útsýnispall á Skoruvíkurbjörgum. Að fara út í  eyðiþorpið Skála og alla leið út á Font gerir ferðina enn betri. Iceland air er með daglegt flug frá Reykjavík til Akureyrar og þaðan má fljúga til Vopnafjarðar, Þórshafnaro g Grímeyjar með Norlandair, sem heldur úti flugáætlun 5 daga vikunnar. Bílaleiga Akureyrar er með útibú á Þórshöfn og býður m.a. uppá hentuga bíla til ferða útá Langanes.

Þjónusta

Upplýsingar

Heimilisfang við Miðholt
Póstfang/Bær 
680 Þórshöfn
Sími
 4681515
Netfang 
sigurbjornf@langanesbyggd.is / thjonustumidstod@langanesbyggd.is
Vefsíða www.langanesbyggd.is
Opnunartími
 1.júní – 31.ágúst
Fjarlægð frá Reykjavík: 621 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 224 km

Þjónusta á staðnum

Kort

Myndir