Tjaldsvæði Kiðagils

Norðurland / Tjaldsvæði

Tjaldsvæði Kiðagils er rúmgott og rólegt með aðgengi að salernum, útivaski með köldu vatni og rafmagni. Hægt að kaupa aðgang að sturtu. Við hliðina er íþrótta- og leikjasvæði með fótboltamörkum og annarri afþreyingu og stutt frá er leikvöllur fyrir yngstu kynslóðina. Hægt er að fá lánaðan ýmsan búnað og bolta í eigu ungmennafélagsins á staðnum.

​Kiðagil er staðsett í miðjum Bárðardal við veg nr. 842 vestan Skjálfandafljóts​, rúmlega 20 km frá þjóðvegi 1.  Um einum kílómetra sunnar er brú yfir Skjálfandafljót yfir á vegi nr. 844 og 843.

Tilvalið fyrir fjölskyldufólk að dvelja nokkrar nætur og skreppa dagsrúnta í fossaferðir að Aldeyjarfossi, Hrafnabjargafossum og Goðafossi (18-22 km) eða í sund á Laugum (37 km).​ Hægt er að fara tvær leiðir í Mývatnssveit, hina hefðbundu eftir þjóðveginum (60 km í Skútustaði) eða heiðarleið milli Engidals og Stangar, ekki fyrir minnstu bílana (45 km í Skútustaði). Fjarlægð til Húsavíkur er 71 km og til Akureyrar eru 55 km gegnum Vaðlaheiðargöng.

Veitingasala er í Kiðagili sem opin er 12-21. Boðið er upp á kaffiseðil og matseðil þar sem finna má margt spennandi úr nágrenninu t.d. reyktan silung, villisveppasúpu, jurtakryddað lambafillet og ferskvatnsbleikju. Auk þess er nýtt fleira staðbundið hráefni s.s. rabarbari, bláber og krækiber. Hægt að kaupa morgunmat (talið við starfsfólk).  Lítið handverkshorn er í Kiðagili þar sem seldar eru vörur framleiddar af íbúum dalsins.

Unnið er að því að bæta aðstöðu tjaldsvæðisins enn frekar og framboð á afþreyingu er í stöðugri þróun.  


Þjónusta

Upplýsingar

Heimilisfang  Kiðagil, Bárðardal
Póstfang/Bær 641 Húsavík
Sími  4643290 / 8953291
Netfang kidagil@kidagil.is       
Vefsíða www.kidagil.is
Opnunartími  1. júní – 15. september
Fjarlægð frá Reykjavík: 456 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 263 km

Þjónusta á staðnum

Kort

Myndir