Tjaldsvæðið á Kópaskeri er við innkeyrsluna inn í þorpið. Þjónustuhúsið með tveim vöskum, sturtu og einu salerni blasir við en tjaldsvæðið sjálft er neðan við bakkann. Þar er mjög skjólgott úr öllum áttum nema sunnanátt. Á tjaldsvæðinu er kolagrill, rafmagnstenglar og þvottasnúra ásamt pikknik borðum.

Á Kópaskeri er heilsugæsla, útibú Lyfju, útibú Landsbankans, Skerjakolla (verslun), vínbúð, hárskeri og Röndin vélaverkstæði. Á Kópaskeri er Skjálftasetur, Byggðasafn sem er rétt utanvið þorpið,  9 holu púttvöllur, leiktæki og margt fleira. Margar góðar gönguleiðir eru í nágrenninu og eru sýndar á korti við tjaldsvæðið. Í góðu veðri liggja selir á steinum við ströndina en einnig er fjölbreytt fuglalíf í þorpinu og allt í kring.

Þjónusta

Upplýsingar

Heimilisfang Austurtröð 4
Póstfang/Bær 670 Kópasker
Sími 4652180
Netfang nordurthing@nordurthing.is
Vefsíða nordurthing.is
Opnunartími 1. júní – 1. september
Fjarlægð frá Reykjavík: 559 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 244 km

Þjónusta á staðnum

Kort

Myndir