Tjaldsvæðið að Hlöðum

Tjaldsvæði / Vesturland

Tjaldsvæðið að Hlöðum er staðsett í norðanverðum Hvalfirði með útsýni yfir fjörðinn. Nýjir rekstaraðilar tóku við tjaldsvæðinu núna í maí 2026.

Svæðið sjálft skiptist í tvo hluta. Annars vegar er tjaldsvæði fyrir neðan félagsheimilið og hins vegar vestan bílastæðisins en þar er gróðursælt og nokkuð skjólsælt.

Uppvöskunar-, salernis- og sturtu aðstaða er aftan við félagsheimilið. Rafmagn er aðgengilegt á flöt fyrir neðan félagsheimilið gegn gjaldi.

Við tjaldsvæðið er dásamleg hlý sundlaug með tveimur heitum pottum, köldu kari og saunaklefa. Ýmsir viðburðir og uppákomur eru í lauginni yfir sumartímann. Kynnið ykkur laugina á www.hladirsund.is og á samfélagsmiðlum.

Rafmagn: 1.000 kr nóttin 

Þjónusta

Upplýsingar

Heimilisfang  Hlaðir í Hvalfirði
Póstfang/Bær 301 Akranes
Sími  4338980
Netfang sund@hladirsund.is       
Vefsíða hladirsund.is/tjaldsvadi
Opnunartími  23. maí – 31. ágúst
Fjarlægð frá Reykjavík: 64 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 622 km

Þjónusta á staðnum

Kort

Myndir