Bíldudalur

Tjaldsvæði / Vestfirðir

Tjaldsvæðið á Bíldudal er staðsett niðri við sjó við íþróttahúsið Byltu. Tjaldsvæðið er búið salernum, köldu og heitu vatni, Rafmagn og seyrulosun er fyrir húsbíla, og ruslagámar eru á staðnum. Í íþróttahúsinu er góð baðaðstaða, heitur pottur ásamt þvottavél og þurrkara.

Á Bíldudal er fjölbreytt afþreying í boði þar sem er að finna hið einstaka Skrímslasetur og tónlistarsafnið Melódíur minninganna. Hægt er að komast í styttri og lengri skipulagðar ferðir útfrá Bíldudal, siglingu og sjóstöng. Margir fallegir og áhugaverðir staðir eru allt í kring sem vert er að skoða m.a. Selárdal þar Gísli í Uppsölum bjó og Samúel Jónsson listamaðurinn með barnshjartað, safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri.

Hin stórfenglega náttúra svæðisins býður upp á óþrjótandi möguleika á eigin vegum en einnig er hægt er að komast í margvíslegar skipulagðar ferðir um svæðið, styttri og lengri gönguferðir, rútuferðir, siglingu og sjóstöng, einn af fegurri fossum landsins, Dynjandi, er í Arnarfirði, í Reykjafirði er heit sundlaug og náttúrulaug, Rauðisandur við Breiðafjörð, Minjasafn Egils Ólafssonar í Örlygshöfn, Látrabjarg stærsta fuglabjarg Evrópu, auk heillandi skeljasandsfjara vítt og breitt um svæðið.

Þjónusta

Upplýsingar

Heimilisfang Hafnarbraut 15
Póstfang/Bær 465 Bíldudalur
Sími 450-2354
Netfang bylta@vesturbyggd.is
Vefsíða www.vesturbyggd.is
Opnunartími 1. júní–31. ágúst
Fjarlægð frá Reykjavík: 322 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 715 km

Þjónusta á staðnum

Kort

Myndir