Sandfellsskógur

Austurland / Tjaldsvæði

Tjaldsvæðið í Sandfellsskógi er huggulegt tjaldsvæði sem er að mestu leyti í skógivöxnu landi.

Tjaldsvæðið er staðsett í víðfeðmu skóglendi sem hentar einkar vel fyrir tjöld og tjaldvagna, fjölskyldur og fjörkálfa. Á svæðinu eru borð með áföstum bekkjum, Króklækurinn rennur þar í gegn og býður upp á ævintýri fyrir yngsta fólkið.

Á snyrtingunum eru salerni, sturtur, útivaskar og heitt og kalt vatn.

Ferðaþjónustan að Stóra-Sandfelli er í Skriðdal, 17 km. sunnan við Egilsstaði við þjóðveg nr.95 sem liggur á milli Egilsstaða og Hafnar í Hornafirði þegar keyrt er yfir Öxi eða Breiðdalsheiði. Hér er ýmist boðið upp á gistingu í smáhýsum, herbergjum eða á tjaldsvæði.

Einnig eru í boði hestaferðir um Sandfellsskóg og nágrenni, auk þess sem auðvelt er að finna sér skemmtilegar gönguleiðir á svæðinu. Skammt er til allra helstu ferðamannastaða Austanlands frá bænum.

Þjónusta

Upplýsingar

Heimilisfang Stóra Sandfell
Póstfang/Bær 701 Egilsstaðir
Sími 4712420 / 6614457
Netfang info@storasandfell.is
Vefsíða www.storasandfell.is
Opnunartími 1. júní – 31. ágúst
Fjarlægð frá Reykjavík: 617 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 45 km

Þjónusta á staðnum

Kort

Myndir