Möðrudalur – Fjalladýrð

Norðurland / Tjaldsvæði

Ferðaþjónustan Fjalladýrð Möðrudal á Fjöllum er staðsett miðja vegu milli Mývatns og Egilsstaða við veg 901. Fjalladýrð býður gestum sínum uppá fjölbreytta þjónustu í kyrrlátu umhverfi. Staðurinn er rómaður fyrir fagra fjallasýn og víðsýni til allra átta, en þar má sjá drottningu íslenskra fjalla – Herðubreið gnæfa tignarlega yfir umhverfi sitt, Kverkfjöll rísa úr Vatnajökli og Víðidalsfjöllin baða sig í kvöldsólinni.

Fjallakaffi er snotur burstabær sem býður uppá þjóðlegar veitingar og hefur getið sér gott orð fyrir kraftmikla kjötsúpu og gómsætar kleinur og ástarpunga. Á  kvöldverðarmatseðli hefur staðurinn getið sér gott orð fyrir heimaunnar afurðir og fer þar lambakjöt og bleikja fremst í flokki. Einnig er þar íslenskt handverk til sölu, auk hefðbundinnar ferðasjoppu.
Gistiaðstaðan er í rómantískum baðstofum í gamla stílnum sem henta vel fyrir pör, fjölskyldur eða minni hópa. Einnig er boðið uppá 1–4 manna herbergi í uppábúnum rúmum eða í svefnpoka sem og tveggja manna herbergi í nýju snotru gistihúsi með sérbaði. Tjaldstæðið er búið öllum helstu þægindum fyrir tjaldgesti jafnt sem húsbílaeigendur, þar sem til staðar er rafmagn. Sparkvöllur og frispygólf er til staðar fyrir fjölskylduna.

Gönguleiðir eru margar skemmtilegar út frá Möðrudal og eru þær kortlagðar, vel merktar og stikaðar. Jeppaferðir og gönguferðir um náttúruperlur norður hálendisins
t.d. á Herðubreið, í Öskju, Herðubreiðarlindir, Kverkfjöll, Hafrahvammagljúfur eða sérsniðnar ferðir að óskum.
Eldsneytissala í torfbæ – komið og upplifið skemmtilegri áfyllingu á bílinn!

Bjóðum uppá þyrluferðir frá Möðrudal um Holuhraun, Öskju og Kverkfjöll.Í nágrenni:-Dettifoss, Ásbyrgi, Jökulsárgljúfur, Askja, Kverkfjöll, Kárahnúkar, Snæfell, Sænautasel, Vopnafjörður, Mývatn, Húsavík.

Þjónusta

Upplýsingar

Heimilisfang Möðrudalur
Póstfang/Bær
 601 Mývatn
Sími 
8940758
Netfang 
fjalladyrd@fjalladyrd.is
Vefsíða 
www.fjalladyrd.is
Opnunartími 
20. maí – 10. september
Fjarlægð frá Reykjavík: 541km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 136 km

Þjónusta á staðnum

Kort

Myndir